Talka
Talþjálfun
Svava Heiðarsdóttir er menntaður talmeinafræðingur hjá Talka talþjálfun ásamt því að vera menntaður ferðamálafræðingur með viðskiptafræði sem aukagrein. Svava trúir því að með réttri nálgun, líflegri og gagnvirkri kennslu sé gaman að mæta í talþjálfun.→ Um SvövuSkjólstæðingar
Svava útskrifaðist með MS gráðu í talmeinafræði árið 2022 og hefur reynslu af talþjálfun meðal leik- og grunnskólabarna og fullorðinna á öllum aldri. Einnig hefur hún unnið sem íslenskukennari í London og kennt íslensku sem annað tungumál í fjarkennslu. Svava hefur einnig unnið í heimahjúkrun og á hjúkrunarheimili og hefur því mikla reynslu af því að vinna með öldruðum.fjarkennsla
Talka býður upp á fjarkennslu.