Upplýsingar

Svava Heiðarsdóttir er menntaður talmeinafræðingur og ferðamálafræðingur með viðskiptafræði sem aukagrein. Svava trúir því að með réttri nálgun, líflegri og gagnvirkri kennslu sé gaman að mæta í talþjálfun.

gjaldskrá

Talka starfar samkvæmt rammasamningi við Sjúkratryggingar Íslands. Greiðslur vegna þjónustunnar fara því eftir gildandi gjaldskrá sjúkratrygginga hverju sinni.
Börn undir 18 ára greiða ekkert gjald fyrir talþjálfun ef þau eru með beiðni um talþjálfun og samþykki fyrir greiðsluþátttöku frá Sjúkratryggingum Íslands.

Fullorðnir einstaklingar greiða samkvæmd gildandi gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands hverju sinni.

Hér má sjá gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands 01.02.2026

Forfallagjald

Skjólstæðingar eða foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á mætingu skjólastæðinga í talþjálfunartíma. 

Áminning er send í tölvupósti og með SMS en nauðsynlegt er að tilkynna forföll tímanlega, eða fyrir kl. 17 daginn áður, annars er rukkað 10.000 kr. forfallagjald. 
Ef Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt greiðsluþátttöku, greiðir SÍ einungis þá tíma sem mætt er í. Því fellur forfallagjaldið á skjólstæðinginn.